samúðarkveðjur til frönsku þjóðarinnar frá Alþingi.
Hv. alþingismenn. Við erum öll harmi slegin eftir atburðina í París síðastliðinn föstudag þar sem 129 saklausir borgarar létust og hundruð særðust, sumir mjög alvarlega. Hugur okkar er hjá öllu því fólki sem á nú um sárt að binda eftir þessar hroðalegu árásir. Hryðjuverkin í París voru árásir á saklaust fólk en þau eru líka atlaga að þeim vestrænu gildum mannúðar, frjálslyndis og umburðarlyndis sem eru hornsteinar samfélags okkar. Sú atlaga má aldrei takast.
Í morgun sendi ég bréf fyrir hönd Alþingis með samúðarkveðjum til Claudes Bartolones, forseta fulltrúadeildar franska þingsins, Gérards Larchers, forseta öldungadeildar franska þingsins, og Lionels Tardys, formanns vinahóps Frakklands og Íslands í franska þinginu.
Bréfin eru svohljóðandi:
„Ég vil, fyrir hönd Alþingis, þjóðþings Íslendinga, votta frönsku þjóðinni og aðstandendum fórnarlamba voðaverkanna í París síðastliðinn föstudag samúð mína. Árásin var fólskulegt tilræði við þau grundvallarréttindi sem við byggjum lýðræðissamfélög okkar á og fordæmi ég tilræðismennina og þá hugmyndafræði sem liggur að baki voðaverkunum. Hugur minn og þingheims alls er með þeim sem eiga um sárt að binda í kjölfar árásarinnar.“
Ég vil geta þess að samkomulag er um það milli þingflokka að umræður um þessa atburði, hryðjuverkin í París, fari fram á Alþingi á morgun.