145. löggjafarþing — 34. fundur,  16. nóv. 2015.

endurskoðun stjórnarskrárinnar.

[15:13]
Horfa

Katrín Jakobsdóttir (Vg):

Herra forseti. Mig langar að spyrja hæstv. forsætisráðherra um stöðu stjórnarskrármálsins. Ég hef átt sæti í stjórnarskrárnefnd sem hæstv. forsætisráðherra skipaði og hún hefur haldið um það bil 40 fundi og hefur á síðustu fundum talið að hver sá fundur yrði sá síðasti. Það á við um nokkra síðustu fundi. Þeim fundi sem halda átti síðast var frestað vegna þess að þá kom á daginn að formenn stjórnarflokkanna óskuðu eftir fundi með formönnum allra flokka til að ræða framgang málsins. Bréf þess efnis barst fyrir um tíu dögum. Fyrir viku sendi ég bréf til hæstv. forsætisráðherra og hæstv. fjármálaráðherra, formanns Sjálfstæðisflokksins, og gerði þeim grein fyrir að nefndin væri á lokametrunum. Það væri mjög mikilvægt að nefndin fengi skýrt umboð til að ljúka störfum sínum og ef halda ætti slíkan fund lægi á því að gera það svo að við vissum hvar þetta mál ætti að enda. Síðan hef ég heyrt frá varaformanni Sjálfstæðisflokksins og veit að einhverjar umræður hafa farið fram en enginn formannafundur og enginn fundur hefur verið boðaður í stjórnarskrárnefnd.

Herra forseti. Ég spyr í ljósi þess að við höfum setið allnokkra lokafundi: Hvert er þetta mál eiginlega að fara? Hæstv. forsætisráðherra hefur margítrekað að hann vilji sjá stjórnarskrárbreytingar og styðji það ferli mjög eindregið sem nú er í gangi. Ég skil eiginlega ekki hvað tefur nú.

Ég verð að segja að ef ætlunin er að ljúka þessu máli þannig að unnt verði að ljúka þinglegri umfjöllun um það, þó ekki væri nema bara á þessu þingi, þá er allmikið farið að sneyðast um tímann ef við ætlum að ná þjóðaratkvæðagreiðslu samhliða forsetakosningum í júní sem þýðir að við verðum að ljúka umfjöllun um málið fyrir áramót. Þá þurfum við að fá mjög skýr svör um það frá hæstv. forsætisráðherra í fyrsta lagi hvort nefndin hafi skýrt umboð til að ljúka sinni vinnu á næstu dögum, því að það er nánast ekkert eftir til þess að nefndin geti lokið sinni vinnu, og hvort dagsetning þjóðaratkvæðagreiðslunnar er eitthvað sem hæstv. forsætisráðherra (Forseti hringir.) telur skipta máli í þessum efnum. Hvenær sér hæstv. forsætisráðherra fyrir sér að sú nefnd sem hann skipaði ljúki (Forseti hringir.) störfum eða þessum áfanga sinna starfa sem er einungis (Forseti hringir.) spurning um fjögur atriði?