145. löggjafarþing — 34. fundur,  16. nóv. 2015.

endurskoðun stjórnarskrárinnar.

[15:18]
Horfa

forsætisráðherra (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (F):

Virðulegur forseti. Það hefur enginn breyting verið gerð á umboði þess fólks sem starfar í þessari nefnd. Hv. þm. Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs, situr sjálf í nefndinni eins og hún gat um hér áðan og hefur þar af leiðandi allar upplýsingar um gang mála þar frá einum fundi til annars, meiri upplýsingar en ég hef meira að segja. Hvað varðar fulltrúa annarra flokka veit ég ekki til þess að nein breyting hafi verið gerð á umboði þeirra.

Hvað varðar svo dagsetningu fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu þá hlýtur það að vera eitthvað sem menn vilja koma sér saman um líka. Við hljótum að finna út úr því í sameiningu þegar við ræðum á fundi formanna næstu skref í þessari vinnu hvenær heppilegast sé að hafa slíka atkvæðagreiðslu.