145. löggjafarþing — 34. fundur,  16. nóv. 2015.

íslensk tunga í stafrænum heimi.

[15:47]
Horfa

mennta- og menningarmálaráðherra (Illugi Gunnarsson) (S):

Virðulegur forseti. Það fór vel á því að forseti sparaði bjölluna. Þó hefði það sennilega ekki orðið til neinna sérstakra lýta að hafa bjölluhljóm undir, það hefði orðið sem einhvers konar tónverk um leið.

Móðurmálið okkar geymir þekkingu og reynslu kynslóðanna, þeirra sem hafa gengið á undan okkur hér í landinu. Hugtök, málshættir, orðtök, allt geymir þetta hugmyndir og reynslu fólksins í landinu og er sá meginþráður sem bindur saman kynslóðirnar. Þess vegna er það skylda okkar bæði við fortíð og framtíð að tryggja sem best að sú kunnátta sem felst í móðurmálinu varðveitist, að móðurmálið sé okkur tamt, að það sé ekki eitthvað sem við tölum bara um á hátíðis- og tyllidögum heldur lifandi veruleiki okkar, að börnin okkar vaxi úr grasi þannig að þau læri málið, og læri fyrst og fremst að nota það, njóta þess og alls þess sem tungumálið býður upp á.

Það er alveg hárrétt sem kom fram hjá málshefjanda, að okkur steðja ýmsar ógnanir og þeir í hópi okkar virðulegra og hv. þingmanna sem erum með börn á grunn- eða leikskólaaldri þekkja hversu mikið framboðið er og hversu auðvelt börn eiga með að útvega sér og nálgast efni á ensku. Ég hef stundum hugsað til þess tíma og þeirrar umræðu sem varð í þjóðfélaginu þegar hið svokallaða kanasjónvarp náðist á hluta landsins og þær áhyggjur sem menn höfðu þá af tungumálinu. Ég get ekki metið hvað hefði verið sagt ef þeim sem þar höfðu mestar áhyggjurnar og vöruðu mest við hefði verið ljós sú framtíð sem biði okkar hvað þessi mál varðaði. Aðgengið er orðið svo margfalt. Þess vegna hvílir á okkur, þeirri kynslóð sem nú lifir og fer með opinbert vald, ríkari og meiri skylda að tryggja að íslenskan verði með sem bestum hætti og áfram nothæf í þeim veruleika sem börnin okkar lifa í, þessum stafræna veruleika. Við þurfum auðvitað sjálf að tengja en börnin þó alveg sérstaklega.

Til að svo megi verða þarf að tryggja að íslenskan sé nothæf í hinum stafræna veruleika, að móðurmálið okkar sé jafn gilt þar og í skrifuðu og mæltu máli. Til að það sé hægt verðum við að tryggja á næstu missirum og árum að nægjanlegt fjármagn renni til rannsókna og þróunar á sviði máltækni. Nú þegar eru hafnar viðræður milli stjórnvalda annars vegar og atvinnulífsins hins vegar hvað varðar þátttöku atvinnulífsins við hlið ríkisvaldsins við að fjármagna þessa vinnu. Ég held að það fari vel á því að ríkið og atvinnulífið komi saman að þessu vegna þess að hagsmunirnir eru svo gríðarlegir.

Það verður að vera þannig, og það verður þannig, að á næstu missirum og árum verði tryggt að nægjanlegt fjármagn fáist til að vinna þá vinnu sem nauðsynleg er til að íslenskan verði gjaldgeng í hinum stafræna heimi. Kostnaðurinn við það er nefnilega ekki nema brotabrot af þeim geipilega kostnaði sem á okkur mundi falla ef brotnaði undan tungumálinu. Ef móðurmálið okkar hættir að vera næstu kynslóð og börnunum okkar tamt stöndum við frammi fyrir vandamáli sem er óskaplega erfitt að vinna bug á og ekki einu sinni víst að hægt sé þó að allir fjármunir sem okkur eru tiltækir yrðu notaðir til þess.

Með öðrum orðum, virðulegi forseti, erum við í kappi við klukkuna. Við getum ekki beðið árum saman. Við getum ekki beðið eftir því að vandamálið sýni sig. Við verðum að gera það sem þarf að gera til að koma í veg fyrir að svo verði.

Þess vegna ítreka ég að viðræður milli ríkisins og atvinnulífsins eru farnar af stað. Atvinnulífið hefur tekið því mjög vel og sýnt því mikinn áhuga. Af okkar hálfu segi ég að við munum vilja gera það sem þarf að gera til þess á næstu missirum og árum að fjármunirnir séu til staðar og ég er þess fullviss að hér í salnum er mikill vilji til þess. Hér eru ýmsir virðulegir þingmenn úr öllum flokkum sem hafa lagt mjög gott til málanna, lagt upp með þessa vinnu og ég held að (Forseti hringir.) þetta sé eitt af þeim málum sem við alþingismenn getum náð góðri sátt um og sýnt þjóðinni að þegar kemur að grundvallaratriðum eins og móðurmálinu stöndum við saman og vinnum vel saman.