íslensk tunga í stafrænum heimi.
Herra forseti. Á Hjaltlandseyjum er steinn þar sem stendur: Með lögum skal land byggja. Þar er vitnað til gamalla norrænna lögbóka og Njáls sögu sem hv. þingmenn kunna auðvitað utan bókar, þar sem Njáll lætur þessi orð falla. Ástæða þess að við skiljum þetta enn þann dag í dag og skiljum strenginn sem við eigum við þessar bresku eyjar er tungumálið. Eins og hér hefur komið fram kann þó að vera að tungumál okkar sé að taka hraðari breytingum á þeim tímum sem við lifum nú en það hefur gert margar aldir áður. Það þýðir að strengir okkar rofna við önnur ríki og líka við heimsmenninguna. Ég leyfi mér að segja að tungumálið okkar og hvernig það hefur mótað menningu okkar er mikilvægasta framlag okkar til heimsmenningarinnar. Það er á okkar ábyrgð að tryggja að heimsmenningin verði áfram jafn fjölbreytt og raun ber vitni með því að tryggja að þetta mál verði áfram lifandi, að við höldum áfram að notað það til að hugsa nýja hluti, skrifa nýja hluti, skapa nýja hluti, syngja nýja hluti, semja fleiri ljóð og sögur, hugsa eitthvað nýtt.
Eins og staðan er núna með tilkomu tækninnar er alveg ljóst að börnin okkar munu alast upp í róttækt öðruvísi umhverfi en við sem hér erum ólumst upp í. Breytingarnar sem síðustu tvær kynslóðir hafa gengið í gegnum á samfélagsháttum eru miklu róttækari en kynslóðirnar þar á undan gengu í gegnum. Að sjálfsögðu mun það hafa áhrif á tungumálið.
Ég fagna því ef til stendur að fara að gera raunverulegt átak í tungutækni þannig að unnt verði, eins og hv. þingmaður sem talaði á undan lýsti því, að tala við tölvur og önnur tæki á móðurmáli okkar en það er líka mikilvægt að við tryggjum að áfram verði hér kjöraðstæður til að skapa á þessu móðurmáli, að áfram verði sagðar sögur og samin ljóð á íslensku. Það er ekki nóg að tala íslensku með einföldum skipunum, það þarf líka að vera inntak á bak við tungumálið. Þess vegna minni ég líka á hlutverk menningarstofnana, bókaútgáfunnar í landinu og menningarstofnunarinnar Ríkisútvarpsins (Forseti hringir.) til að tryggja að við höldum áfram að hugsa nýja hluti á íslensku. Það er eina leiðin til þess að eiga þetta tungumál áfram, herra forseti.