145. löggjafarþing — 34. fundur,  16. nóv. 2015.

sjálfkeyrandi bílar.

174. mál
[16:27]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Helgi Hjörvar) (Sf):

Virðulegur forseti. Ég þakka ráðherra svörin og vil eindregið hvetja til þess að farið sé yfir þessi lagalegu álitaefni og sömuleiðis unnið að stefnumörkun í þessum efnum, meðal annars vegna þess að þetta er staðreynd á götunum. Menn geta á Nútímanum séð myndband af ökumanni sem ekur bifreið úr Reykjavík til Mosfellsbæjar. Sá bíll ekur þá leið að mestu leyti sjálfur. Hann skiptir sjálfur um akreinar en ekki bílstjórinn, bílstjórinn sleppir höndunum af stýrinu. Bíllinn finnur sjálfur bílastæði, leggur sjálfur í bílastæði og þar fram eftir götunum.

Þessi þróun er mjög ör og þess vegna þurfum við að taka afstöðu til álitamálanna. Ég tel hins vegar að í þróuninni felist stórkostleg tækifæri í því að auka umferðaröryggi vegna þess að tölvur og tækni eru miklu betri bílstjóri, þegar það hefur verið þróað nægilega, en maðurinn sjálfur. Ég held að það sé möguleiki á því að ná svipuðum árangri í útrýmingu slysa í umferð með þessari þróun eins og við höfum náð á sjó með tækniþróun þar á undanförnum áratugum þar sem banaslys heyra orðið nánast sögunni til.

Það er líka ástæða til þess að fara yfir stefnumörkunina vegna þess að þessi þróun getur auðvitað haft gríðarleg áhrif á þörf okkar fyrir risastórar fjárfestingar í samgöngum. Hversu hröð hún verður og hversu útbreidd hún verður getur haft áhrif á það hversu mikil umferðarmannvirki við höfum þörf fyrir, hvort umferð muni í ríkari mæli dreifast yfir lengri tíma þegar mikil hagkvæmni verður í því að deila með sér bifreiðum, hvort sú staðreynd að sjálfvirkur bíll getur sótt mann og keyrt á tiltekinn áfangastað skapi ástæðu til þess að efast um þörfina fyrir stórkostlegar fjárfestingar í innviðum, t.d. lestarsamgöngum. Það er spurning sem þarf að taka afstöðu til og gæta að því að við séum ekki að fjárfesta í vegasamgöngum og mannvirkjum í vegagerð í anda (Forseti hringir.) þeirrar tækni sem ríkti í samgöngum í gær heldur horfum til morgundagsins.