145. löggjafarþing — 34. fundur,  16. nóv. 2015.

væntanleg íbúakosning í Reykjanesbæ.

266. mál
[16:56]
Horfa

innanríkisráðherra (Ólöf Nordal) (S):

Hæstv. forseti. Það er þannig þegar kemur að þessu tiltekna fyrirbæri í 107. gr. sveitarstjórnarlaga og síðan aðkomu innanríkisráðuneytisins á grundvelli þessa bráðabirgðaákvæðis að þar erum við annars vegar að tala um innanríkisráðuneytið sem yfirvald á sveitarstjórnarstigi og svo hefur innanríkisráðuneytið annan hatt þegar kemur að kosningu. Að því leyti má segja að innanríkisráðuneytið gegni dálítið ólíkum hlutverkum þegar kemur að þessu fyrirbæri, íbúakosningu á grundvelli sveitarstjórnarlaga. Ráðuneytið hefur einungis aðkomu að þessu máli hér sem varðar rafræna kjörskrá, ekkert um efni máls eða neitt slíkt. Það er alfarið á hendi sveitarstjórnanna á grundvelli 107. gr. Mér hefur stundum þótt dálítið merkilegt hvað sveitarfélög hafa notað þetta tæki lítið í ágreiningsmálum af því að þetta hefur staðið í sveitarstjórnarlögum í langan tíma. Þetta er í sjálfu sér ekki óskaplega mikið notað, eftir því sem ég hygg.

Hins vegar er þetta núna ágætistækifæri fyrir okkur til að fylgjast með því hvernig þetta gengur og hvernig þessi útgáfa af íbúakosningu eða, ef við leyfum okkur að fara frjálslega með, þessi útgáfa af þjóðaratkvæðagreiðslu gengur.

Við lærðum vissa hluti af íbúakosningunni í Ölfusi. Það voru gerðar tilteknar breytingar á reglugerðinni vegna hennar. Ég á alveg eins von á því að sama verði uppi á teningnum þegar kemur að atkvæðagreiðslunni í Reykjanesbæ. En mér finnst þetta sýna okkur að það eru mjög margar spurningar uppi þegar kemur að framkvæmd slíkra kosninga. Það segir okkur að við þurfum að fara mjög gætilega og vanda mjög til verka þegar (Forseti hringir.) við förum í breytingar á lögum, ég tala nú ekki um stjórnarskipunarlögum, vegna þjóðaratkvæðagreiðslu. Það er svo margt sem þarf að hafa í huga þegar við ljúkum þeirri vinnu endanlega.