löggæsluáætlun samkvæmt þingsályktun nr. 49/140.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Þó að ég færi örlítið víðar en bara í löggæsluáætlunina tvinnast þetta allt saman eins og hæstv. ráðherra kom inn á.
Ég er afskaplega ánægð með þessa áætlun, þ.e. að verið sé að vinna þessa löggæsluáætlun. Ég er sammála því að það tekur á því sem ég var að reyna að koma að hér áðan, þjónustustiginu, það tekur á fjármagninu og það er mjög mikilvægt að kostnaðarvitund þingsins sé efld. Réttarvörslukerfið sem er hluti af þessari löggæsluáætlun — við þingmenn þurfum að fá uppfærslu frá okkar fólki í þessari nefnd. Fækkun í lögreglunni hefur verið mjög mikil síðustu 10–15 árin, ein 11% og við höfum heyrt það með bíla og akstur og allt eftirlit, sem auðvitað minnkar öryggi íbúa og borgara, að það hefur dregið úr þessu öllu saman til langs tíma en ferðamönnum hefur fjölgað og íbúafjöldinn aukist. Ökutækjum hefur líka fjölgað og slysatíðni lögreglumannanna sjálfra hefur aukist sem kvað meðal annars vera vegna aukins álags og undirmönnunar.
Það er afar mikilvægt að heildarsýnin komi fram og ég tek undir með ráðherra, sú heildarsýn sem við þurfum að fá fram þarf að fara að skýrast og fjármagnið þarf að fylgja. Ég er ekki alveg viss um að það sé endilega brugðist við því nema bara núna í fjárlögum. Það þarf að gerast í fjárlögum hvers árs en það er spurning hvort það byggist þá upp í fjárveitingum og opinberum fjármálum til lengri tíma en við þekkjum núna. Ég átta mig hreinlega ekki á því hvernig við getum gert það.
Ég held að félagið hafi fastráðið lausráðna menn núna síðast þannig að fjöldinn hefur kannski ekki orðið eins mikill og gert var ráð fyrir.