145. löggjafarþing — 34. fundur,  16. nóv. 2015.

geislavirk efni við Reykjanesvirkjun.

145. mál
[17:44]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir) (Sf):

Virðulegi forseti. Ég lagði fram fyrirspurn fyrir margt löngu, eða um það bil fyrir tveimur mánuðum, til hæstv. heilbrigðisráðherra vegna geislavirkra efna sem fundust síðasta vor eða sumar í borholum Reykjanesvirkjunar. Atvik urðu þess valdandi að ekki hefur reynst unnt að ræða þessa fyrirspurn mína í þinginu fyrr en nú. Það er af óviðráðanlegum ástæðum sem hvorki ráðherra né sú sem hér stendur getur neitt við gert, þar sem sú sem hér stendur hefur verið erlendis.

Nú er sem sagt ráðrúm til að taka málið upp og ég vil byrja á að þakka ráðherra fyrir að mæta hér í þingsal til að taka umræðuna þó að seint sé — og ekki við hann að sakast, eins og fyrr sagði, heldur landaflakk þingmannsins sem er fyrirspyrjandi.

Upphafleg fyrirspurn kemur til vegna þess að í apríl sl. höfðu Geislavarnir látið ráðuneytið vita af því að grunur væri um geislavirk spilliefni í borholum Reykjanesvirkjunar. Það var ákveðið að mæla þessi efni og í júní er ráðuneytinu gerð grein fyrir því að fundist hafi geislavirk spilliefni. Málið kemur hins vegar ekki til vitneskju almennings fyrr en komið er fram í september, langt fram í september.

Þess vegna spyr ég hæstv. ráðherra hvers vegna hann hafi ekki upplýst almenning um þessi geislavirku spilliefni í borholum við Reykjanesvirkjun fyrr en raun varð á. Á hvaða rökum eða gögnum, sem ráðherrann hafði undir höndum, var sú ákvörðun byggð að upplýsa almenning ekki um málið? Ýmislegt hefur komið fram í umræðunni og þar sem efni fyrirspurnarinnar hefur að hluta til verið svarað í fjölmiðlum verður ekki komist hjá því að uppfæra fyrirspurnina aðeins og svörin sem þó höfðu borist í september kölluðu á nokkrar viðbótarspurningar. Það kom til dæmis fram í umræðunni þá að vísindamenn Geislavarna, og eins forsvarsmenn Hitaveitu Suðurnesja og fleiri, töldu nauðsynlegt að rannsaka betur hvort um frekari geislavirkni væri að ræða, bæði á svæðinu í borholunum og víðar.

Ég vil því spyrja hvað líði rannsóknum á því hvort um frekari geislamengun sé að ræða í öðrum jarðvarmavirkjunum eða drykkjarvatni á svæðinu. (Forseti hringir.) Liggja einhverjar niðurstöður fyrir úr þeim rannsóknum og síðast en ekki síst, hvers vegna óskaði heilbrigðisráðherra ekki strax eftir þessum rannsóknum þegar hann fékk pata af málinu?

Virðulegi forseti. Klukkan er biluð hjá mér og ég gat ekki varast það hvað tíminn leið hratt. Ég árétta að ég spyr út frá almannarétti um upplýsingarétt í umhverfismálum.