145. löggjafarþing — 35. fundur,  17. nóv. 2015.

þjóðaröryggisstefna fyrir Ísland.

327. mál
[15:59]
Horfa

Birgir Ármannsson (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég held að við eigum að beita okkur í þessum málum á vettvangi NATO sem og annars staðar. Kjarnorkuvopn eru partur af varnarbúnaði NATO, fram hjá því verður ekki litið. Við höfum, með ýmsum yfirlýsingum á undanförnum árum og áratugum, lýst yfir andstöðu við eða vilja til að draga úr kjarnorkuvopnum og vinna að afvopnun á því sviði. Ég tel að við eigum að gera það áfram.

Tilvísun til alþjóðasamninga nær ekki bara til NATO heldur geta það líka verið spurningar um frjálsa för sæfara og loftfara jafnvel. En ég held að við getum eins og við höfum gert — ég held að það hafi verið 1985 sem fyrst kom yfirlýsing vilja til kjarnorkuvopnaleysis frá íslenskum stjórnvöldum — samþætt þetta, verið í NATO, talað rödd afvopnunar á þeim vettvangi og annars staðar. Ég held að það sé ekki ósamrýmanlegt, en auðvitað gerir það það að verkum að undir einhverjum kringumstæðum geta orðið árekstrar í þeirri stefnumótun eða framsetningu hjá okkur. Ég held að það sé raunsætt að gera ráð fyrir því að það geti verið.

Ég held að við eigum þann möguleika að halda fram sjónarmiðum um afvopnun og mikilvægi þess að draga úr kjarnorkuvopnabúrum, takmarka útbreiðslu kjarnorkuvopna og þess háttar án þess að það hafi áhrif á stöðu okkar í NATO.