höfundalög.
Virðulegi forseti. Ég vil bara fagna því ef hæstv. ráðherra ætlar að gæta meðalhófs í þessum málum og hafa í huga að finna eitthvert jafnvægi í þessu máli. Auðvitað þarf að hugsa um höfundaréttinn þannig að þeir sem skapa verkið fái pening fyrir vinnu sína. Það má heldur ekki skerða tjáningarfrelsið. Það sem ég hef sérstaklega áhyggjur af er ef þetta hefur menningarleg þrengingaráhrif, þ.e. ef fólk getur ekki tjáð sig lengur í því formi sem er í boði á upplýsinga- og tækniöld. Við verðum að geta „kommenterað“ á það sem er að gerast í umhverfi okkar og nýtt okkur það sem er í boði og er í menningunni okkar, það sem við elskum og viljum deila með öðrum.