höfundalög.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni ræðuna. Ég vildi nefna hvað varðar 5. gr., þar sem fjallað er um ákvæði sem heimilar samningskvaðaleyfi, að þá er enn og aftur um að ræða samsvarandi ákvæði og er að finna í norrænni löggjöf. En þá er rétt að taka fram það sem kemur fram í umfjöllun um 5. gr., með leyfi forseta:
„Þeir höfundar sem standa utan samtakanna sem samningskvaðaleyfið tekur til hafa sama rétt til þóknunar og þeir sem hafa veitt samtökunum samningsumboð til að koma fram fyrir þeirra hönd og geta jafnframt gert kröfu á samtökin um að fá þóknun greidda beint til sín, sbr. 11. gr. frumvarpsins.“
Auðvitað geta þeir líka beitt úrræðum til að koma í veg fyrir birtinguna en þá þurfa þeir að grípa til slíkra úrræða. Það er því ekki alveg svo að það sé einhvern veginn búið að framselja til einstakra samtaka allan samningsrétt um höfundaréttindi. Það er einvörðungu verið að tala um afmörkuð tiltekin dæmi þar sem að samningskvaðaleyfið á við og þar með er ekki heldur gerð skylda til að menn séu innan slíkra samtaka, þvert á móti. Menn geta áfram verið utan samtakanna, eins og kemur fram í skýringum með greininni. Aftur á móti er tryggt að þeir fái greiðslu þar fyrir og eins líka að menn geti síðan, ef þeir vilja ekki að þetta sé birt, gripið til aðgerða til að koma í veg fyrir birtinguna. En þeir verða þá að hafa frumkvæðið að því.