höfundalög.
Virðulegi forseti. Á þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar fyrir yfirstandandi 145. löggjafarþing er boðað að lögð verði fram fimm frumvörp til breytinga á höfundalögum nr. 73/1972, með síðari breytingum, eins og getið var um í umræðu um 333. mál. Þrjú þessara frumvarpa varða innleiðingu tilskipunar á sviði höfundaréttar sem hafa þegar verið tekin upp í EES-samninginn, þar á meðal það frumvarp sem við ræðum, innleiðingu tilskipunar Evrópuþingsins og -ráðsins 2012/28/ESB um tiltekna leyfilega notkun á munaðarlausum verkum. Tilgangur frumvarpsins er að innleiða tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2012/28/ESB um tiltekna leyfilega notkun á munaðarlausum verkum sem var tekin upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 29/2015, frá 25. febrúar 2015, um breytingu á XVII. viðauka við EES-samninginn frá 2. maí 1992, og skal fella inn í samninginn tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2012/28/ESB frá 25. október 2012 um tiltekna leyfilega notkun á munaðarlausum verkum.
Utanríkisráðherra lagði fram tillögu til þingsályktunar á 144. þingi um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 29/2015 um breytingu á XVII. viðauka (hugverkaréttindi) við EES-samninginn. Innleiðingu tilskipunarinnar átti að vera lokið fyrir 6. ágúst 2015. Íslenskum stjórnvöldum hefur þegar borist aðvörun frá Eftirlitsstofnun EFTA um tafamál vegna vanrækslu á innleiðingu hennar innan tilsetts tíma, mál nr. 76946, bréf dagsett 1. október 2015.
Virðulegi forseti. Menningarstofnanir sem varðveita menningararf Evrópu eru í óðaönn að stafvæða verk í söfnum sínum til að varðveita og gera þau aðgengileg á netinu. Stór hluti verka sem er að finna í menningarstofnunum er háður höfundarétti. Til að gera stafræn eintök af verki sem nýtur verndar höfundalaga þarf annaðhvort heimild rétthafa eða sérstaka undantekningu í höfundalögum. Þegar um verk er að ræða sem teljast munaðarlaus, þ.e. verk sem njóta höfundaréttar en þar sem höfundur eða aðrir rétthafar eru ekki þekktir eða þótt þeir séu þekktir er ekki vitað hvar þá er að finna, er ekki unnt að leita heimildar hjá viðkomandi til að stafvæða verkin og gera þau aðgengileg. Tilskipuninni er ætlað að leysa þennan vanda sem menningarstofnanir margra Evrópuríkja standa frammi fyrir til að tryggja að ekki sé gloppa í aðgengi að menningararfi Evrópu í stafrænu formi. Til þess að ná því markmiði heimilar tilskipunin ákveðnum menningarstofnunum að nota verk án heimildar rétthafa ef eftir ítarlega leit er komist að þeirri niðurstöðu að viðkomandi verk séu munaðarlaus.
12. gr. höfundalaga heimilar ákveðnum söfnum að gera eintök af verkum sem eru í safnkosti þeirra til notkunar í eigin starfsemi og til útlána slíkra eintaka að hluta án sérstaks samþykkis rétthafa.
Engin ákvæði eru í höfundalögum um heimild stofnana sem veita fjölmiðlaþjónustu í almannaþágu til að gera eintök af verkum sem er að finna í söfnum þeirra og/eða gera þau aðgengileg.
Í þingmáli nr. 702, sem lagt verður fram síðar og áður hefur verið gerð grein fyrir í framsögu, er lagt til að tekið verði upp sérstakt samningskvaðaákvæði. Það er í 333. máli, virðulegi forseti, þannig að því sé til haga haldið, sérstakt samningsákvæði fyrir söfn sem falla undir 12. gr. sem yrði 12. gr. b, samanber 5. gr. þess frumvarps sem var rætt hér að nokkru áðan. Það ákvæði mun heimila viðkomandi söfnum að gera eintök af birtum verkum í safni sínu og gera þau aðgengileg almenningi ef fyrir hendi er samningskvaðasamningur við til þess bær rétthafasamtök. Ef slíkur samningur er til staðar nær heimildin til allra verka sem undir hann falla, einnig verka rétthafa sem ekki eru félagar í viðkomandi rétthafasamtökum, samanber 14. gr. þess frumvarps. Ef frumvarp í 333. þingmáli nær fram að ganga mun þetta ákvæði gera slíkum söfnum kleift að gera stafræn eintök og gera þau aðgengileg, t.d. á netinu, í samræmi við ákvæði samningskvaðasamningsins. Sömuleiðis er í því frumvarpi að finna tillögu að samningskvaðaákvæði, sem yrði að nýrri 23. gr. b höfundalaga, samanber 12. gr. þess frumvarps, sem heimilar útvarpsstöðvum endurútsendingu verka úr safni þeirra og einnig að gera þau aðgengileg almenningi, þar með talið á þann hátt að hver og einn geti nálgast verkin á þeim stað og stund sem hann sjálfur kýs, ef fyrir hendi er samningur við til þess bær rétthafasamtök. Ákvæðið mundi tryggja að ef útvarpsstofnun hefði samningskvaðasamning þar að lútandi gæti stofnunin notað verk sem væri í safni hennar, sem teldist hennar eigin framleiðsla og hefði áður verið sent út af viðkomandi stofnun, hvort sem rétthafar verksins væru félagar í þeim rétthafasamtökum sem væru bær til að standa að slíkum samningi eða ekki, samanber 14. gr. þess sama frumvarps.
Virðulegi forseti. Skilgreining á hvað telst vera munaðarlaust verk: Í 1. mgr. a-liðar 1. gr. frumvarpsins er kveðið á um skilgreiningu á hugtakinu munaðarlaust verk sem er verk í rituðu máli, hljóðrit, myndrit eða kvikmyndaverk þar sem enginn rétthafi hefur verið fundinn þrátt fyrir ítarlega leit.
Í b-lið 1. gr. frumvarpsins er kveðið á um heimild almenningsbókasafna, menntastofnana, safna, skjalasafna og varðveislustofnana kvikmynda og hljóðrita ásamt stofnunum sem veita fjölmiðlaþjónustu í almannaþágu til að nota munaðarlaus verk. Í fyrstu formálsgrein tilskipunarinnar er undirstrikað að þetta séu þær stofnanir sem eru að fást við að stafvæða evrópska menningararfinn til að byggja upp stafræn söfn innan Evrópu.
Virðulegur forseti. Þá sný ég mér að verkum sem frumvarpið tekur til. Frumvarpið tekur til í fyrsta lagi verka sem útgefin eru í formi bóka, tímarita, dagblaða eða annars ritaðs máls. Í öðru lagi tekur frumvarpið til myndrita og kvikmyndaverka auk hljóðrita sem hafa verið útgefin eða hefur verið útvarpað. Frumvarpið tekur eingöngu til verka sem tilheyra safnkosti þeirra stofnana sem hafa heimild til að nota munaðarlaus verk, þ.e. stofnun sem fær eingöngu heimild til að nota verk samkvæmt frumvarpinu sem er að finna í safnkosti þess.
Frumvarpið tekur einnig til verka eða skyldra réttinda sem eru hluti af munaðarlausu verki, annaðhvort innfelld, t.d. teikning í bók, eða sem órjúfanlegur hluti verks, t.d. listflutningur tónlistarmanns á tónverki.
Virðulegi forseti. Hugtakið ítarleg leit: Forsenda fyrir afnotum munaðarlausra verka er að ítarleg leit að rétthöfum hafi farið fram áður en verkin eru notuð, samanber c-lið 1. gr. sem byggist á 3. gr. tilskipunarinnar. Tilskipunin skyldar þær stofnanir sem framkvæma ítarlega leit og nota munaðarlaus verk til að halda skrá yfir leitina og afnotin ásamt upplýsingum um stöðu munaðarlausra verka og tengiliðaupplýsingum um viðkomandi stofnun. Skráðar upplýsingar skal senda til lögbærra stjórnvalda í viðkomandi ríki, samanber 5. mgr. 3. gr. tilskipunarinnar. Jafnframt skal þeim komið til miðlægs evrópsks gagnagrunns sem rekinn skal af samræmingarskrifstofu innri markaðarins, samkvæmt reglugerð nr. 386/2012, og sem skal vera aðgengilegur almenningi, samanber 6. mgr. 3. gr. tilskipunarinnar. Tilgangurinn með hinum miðlæga gagnagrunni er að koma í veg fyrir tvíverknað við leit rétthafa og jafnframt að hjálpa rétthöfum og öðrum að finna upplýsingar um verk sem talin eru munaðarlaus.
Virðulegi forseti. Hvað varðar heimildir til afnota munaðarlausra verka. Í 2. mgr. b-liðar 1. gr. frumvarpsins er heimild til notkunar munaðarlausra verka með því að gera eintök af þeim í þeim tilgangi að setja þau á stafrænt form, gera þau aðgengileg og skrá, flokka, varðveita og gera við þau. Þá er heimilt að gera þau aðgengileg almenningi á þann hátt að hver og einn geti fengið aðgang að verkunum á þeim stað og á þeirri stund sem viðkomandi kýs. Ekki er þó heimilt að gera verkin aðgengileg á annan hátt, t.d. með því að útvarpa þeim. Afnot á grundvelli tilskipunarinnar eru eingöngu heimil ef þau eru vegna markmiða stofnunarinnar sem varða hlutverk þeirra í almannaþágu.
Rétt er að vekja athygli á því að í frumvarpi á 333. þingmáli, sem áður hefur verið gerð grein fyrir, er gert ráð fyrir upptöku almenns samningskvaðaleyfis sem heimilar samtökum rétthafa og notenda að gera samning um hagnýtingu verka á afmörkuðu og vel skilgreindu sviði þegar samningskvaðaleyfi er forsenda þess að nýtingin sé möguleg. Þá er í sama frumvarpi gert ráð fyrir heimild safna sem falla undir 1. mgr. 12. gr. í höfundalögum til að gera eintök af birtum verkum í safni sínu og gera þau aðgengileg að uppfylltum framangreindum skilyrðum.
Til samans getur sú heimild sem felst í frumvarpi þessu til nýtingar munaðarlausra verka og heimild sem ráðgert er að fáist í öðru frumvarpi um nýtingu verka sem enn eru háð höfundarétti með samingskvaðaleyfi nýst söfnum til að koma safneign sinni á stafrænt form og gera hana aðgengilega almenningi.
Virðulegi forseti. Um lok þess að verk séu talin munaðarlaus: Rétthafar verks geta hvenær sem er komið og afturkallað stöðu munaðarlauss verks að því er varðar rétt þeirra. Í 3. mgr. a-liðar 1. gr. frumvarpsins kemur fram að verk skuli ekki lengur teljast munaðarlaus og afnot þess ekki lengur heimil án samþykkis rétthafa ef hann gefur sig fram við þá stofnun sem notar verkið. Rétthafar munu líka geta sent kröfu um rétt sinn til verksins í gegnum hinn miðlæga gagnagrunn OHIM sem áfram sendir tilkynningu rétthafans til þeirra stofnana sem eru að nota verkið ásamt þeirri stofnun sem framkvæmdi hina upphaflegu ítarlegu leit. Rétthafi að munaðarlausu verki sem hefur verið notað á rétt á sanngjörnum bótum fyrir notkun þess, samanber 3. mgr. a-liðar 1. gr. frumvarpsins.
Virðulegi forseti. Frumvarpið sem ég mæli hér fyrir er mikilvægur þáttur í að skapa lagagrundvöll fyrir það starf sem fram undan er hjá opinberum varðveislu- og miðlunarstofnunum í að koma menningararfinum á stafrænt form og gera aðgengilegan almenningi. Um frekari skýringar við frumvarpið vísa ég til greinargerðar og athugasemda við einstök ákvæði frumvarpsins.
Ég hef þá lokið framsögu minni um þingmál nr. 334. Að því mæltu legg ég til að frumvarpinu verði að lokinni þessari umræðu vísað til hv. allsherjar- og menntamálanefndar.