höfundalög.
Virðulegur forseti. Það kemur fram í skýringum við einstakar greinar frumvarpsins að ætlast sé til þess að skráðar upplýsingar af leitinni séu sendar til lögbærra stjórnvalda í viðkomandi ríki. (Gripið fram í.) Ef íslenskt safn ætlar til dæmis að nota verk sem er talið munaðarlaust þá skal fara fram ítarleg leit og um það skal haldin skrá, það skal síðan tilkynnt til viðkomandi stjórnvalda (Gripið fram í.) þannig að það fari til gagnagrunns eins og kveðið er á um í tilskipuninni. Þar með tel ég að komið sé nægilegt öryggi til að tryggja að þeir sem eiga höfundaréttinn fái tækifæri til að bregðast við því að höfundar þekki þennan gagnagrunn. Komi til þess að verk sé nýtt sem síðan kemur í ljós að á höfund og höfundur gefur sig fram þá á höfundurinn rétt á því að fá bætur fyrir. Ég tel að þetta sé til bóta vegna þess að tilgangurinn er að veita söfnum, þ.e. þeim sem fjalla um menningararf Evrópuþjóðanna, betri tækifæri til að tryggja að þessi menningararfur sé settur á stafrænt form.
Við þeirri hættu sem kann að myndast, að ekki hafi verið leitað nægilega vel og verk sem er talið vera munaðarlaust reynist ekki munaðarlaust, er brugðist með þeim hætti sem er hér lýst. Auðvitað er aldrei hægt að útiloka að það gerist, en í það minnsta er búið að tryggja að höfundur sem verður fyrir því að verk hans er metið munaðarlaust geti brugðist við. Um leið og höfundur gefur sig fram er verkið ekki lengur munaðarlaust og þá gilda bara reglur sem gilda almennt um höfundaréttinn.
Ég tel að í frumvarpinu geti aldrei falist nein hætta fyrir höfundana eða þá sem hafa réttinn. Í því felst sú grundvallarhugsun að tryggja að söfn (Forseti hringir.) Evrópu og þeir sem fara með menningararfinn okkar geti fært hann yfir á stafrænt form svo að hann nýtist öllum íbúum álfunnar sem best.