um fundarstjórn.
Herra forseti. Ég tek undir með þeim sem hafa talið það stóran ágalla á því að fara áfram með þessa umræðu að hæstv. utanríkisráðherra sé ekki við til að standa fyrir máli sínu. Ég segi máli sínu vegna þess að þetta mál er alfarið mál ráðherrans. Utanríkismálanefnd datt þetta ekki í hug og það vita allir hvernig þetta mál er vaxið, að það er sprottið innan úr ráðuneytinu sjálfu og frá ráðherranum að leggja þessa fagstofnun niður, og gera hvað? Færa verkefnin inn í ráðuneytið undir ráðherrann. Þetta mál er því allt öðruvísi vaxið en mörg önnur sem við oft ræðum og eru almenns eðlis og þar sem ráðherrann er í sjálfu sér ekki í sama návígi við málið og í þessu tilviki. Eini maðurinn sem þarf virkilega að standa fyrir máli sínu er ráðherrann. Það er hann sem ber þetta mál fram við litla hrifningu og dræmar undirtektir. Því miður virðist vera búið að handjárna stjórnarliðið til að ætla að láta sig hafa það að standa að þessu með ráðherranum. En við vitum öll að það er lítil stemning fyrir þessu.
Þess vegna verður sá aðili sem ber málið fram og er eini alvöruáhugamaðurinn um það að koma hingað og standa fyrir máli sínu.