um fundarstjórn.
Virðulegi forseti. Þróunarsamvinna er ein af meginstoðum utanríkisstefnu lýðveldisins. Hún hefur verið rekin annars vegar úr ráðuneytinu og hins vegar úr Þróunarsamvinnustofnun. Þróunarsamvinnustofnun nýtur mikillar virðingar alls staðar þar sem hún hefur komið að málum og gegnir hlutverki sínu mjög vel. Það eru álit uppi um það hvort ekki sé réttara að færa þangað alla þróunarsamvinnu frekar en að hafa hluta inni í ráðuneytinu. Það getur ekki verið þolandi að hæstv. ráðherra sem hefur þetta fyrir sitt einkamál ætli ekki að vera viðstaddur umræðuna og svara þeim spurningum sem fyrir hann eru lagðar um það hvers vegna í ósköpunum manninum dettur þetta í hug.