145. löggjafarþing — 36. fundur,  18. nóv. 2015.

alþjóðleg þróunarsamvinna Íslands o.fl.

91. mál
[16:31]
Horfa

Frsm. minni hluta utanrmn. (Össur Skarphéðinsson) (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir mjög skelegga ræðu. Honum var tíðrætt um vinnubrögðin sem tengjast framlagningu þessa máls. Til marks um fantaskapinn sem er í þessu máli er rétt að leggja á það áherslu að t.d. sú merka umsögn frá samtökunum Gagnsæi sem vinna gegn spillingu fékkst ekki rædd í utanríkismálanefnd. Það var aldrei farið yfir þá umsögn. Það er vottur um það með hvaða hætti menn beita hér algjörlega óþekktum vinnubrögðum við að ryðja málinu í gegn. Ég fullyrði að það hefur aldrei gerst áður nokkru sinni og eru engin dæmi um það að þingnefnd hafi verið meinað þess réttar síns að fá að fara yfir umsagnir og leita eftir þeim rökum sem að baki liggja.

Hv. þingmaður talaði um það að í umsögnum hefði verið bent á að skoða þyrfti hvernig málum væri komið fyrir annars staðar, m.a. í Svíþjóð. Það er rétt að upplýsa það að í landi eins og Ítalíu ákváðu menn að skoða nákvæmlega hvernig ætti að koma fyrir þróunarsamvinnu. Eftir langa yfirlegu þar sem helstu sérfræðingar Ítala komu að málinu komust þeir að niðurstöðu. Hver var hún? Hún var sú, herra forseti, að hætta við það sem menn voru að gera þá og taka upp nákvæmlega sömu stefnu og sömu vinnubrögð og á Íslandi. Með öðrum orðum, það sem stórríkið Ítalía telur að hæfi sér þar telur íslenska ríkið að gangi ekki.

Til marks um það hversu rökþrota hæstv. ráðherra er í þessu máli þá kallaði hann á sínum tíma starfsmenn Þróunarsamvinnustofnunar fyrir sig og kynnti þeim þetta og þau spurðu um rökin. Hæstv. ráðherra sagði, og þetta var upplýst á fundi utanríkismálanefndar: Það þarf engar röksemdir.

Þetta er hugarfarið sem að baki býr. (Forseti hringir.) Menn eru af fantaskap að knýja fram vilja sinn, leggja niður stofnun sem ekkert er að. (Forseti hringir.) Ég spyr hv. þingmann: Hvernig finnst honum að við þingmenn eigum að bregðast við svona valdníðslu?