2. umræða fjárlaga.
Virðulegi forseti. Fyrst að umræðu um fjárlög. Ég sit í fjárlaganefnd með hv. þm. Oddnýju Harðardóttur og Bjarkey Olsen Gunnarsdóttur og ég held að það sé rétt sem hæstv. forseti segir, ég held að það sé mikilvægt að reyna að ná sem mestu af fjárlagavinnunni fyrir 2. umr. fjárlaga, það hef ég sagt á þingflokksformannafundum líka, og reyna að taka þungann af breytingartillögum og öðru við 2. umr. frekar en við 3. umr. Mestu skiptir að þetta sé allt unnið vel og þegar málið komi til þingsins sé það vel undirbúið. Varðandi það hvort umræðan dregst um einn eða tvo daga þá held ég að það geti nú varla verið heimsendir þó að það gerist.
Síðan varðandi mörg stór mál sem liggja fyrir þinginu, það gerist oft hér í jólaösinni. Ég sá í umræðum í gær að mönnum liggur mikið á hjarta. Ef þingið þarf að auka afköst sín þá er mér að sársaukalausu þótt við lengjum fund eitthvað fram á kvöld í kvöld og bætum jafnvel við þingfundi á morgun. (BjG: Það eru engin mál.) Þróunarsamvinnumálið hefur verið á dagskrá og það eru fleiri mál sem bíða, opinber fjármál og fleiri. (Gripið fram í.) Þeim sem hér stendur er (Forseti hringir.) er það algjörlega að sársaukalausu þótt við lengjum þingfund inn í kvöldið í kvöld eða þegar dregur nær jólum.