áhrif ferðamannastraums á grunnþjónustu sveitarfélaga.
Virðulegur forseti. Ég beini fyrirspurn minni til hæstv. innanríkisráðherra Ólafar Nordal. Síðustu 16 mánuðina hef ég verið búsett í sveitarfélagi sem er mikið sótt af ferðamönnum. Er daglegt líf og taktur bæjarins farinn að snúast ansi mikið um að veita þeim gistingu. Í raun er staðan orðin slík að nær ómögulegt er að flytja til bæjarins því að varla er hægt að finna leiguhúsnæði og lítið sem ekkert er til sölu.
Ég tel mig geta fullyrt að flestallt sem losnar fari í gistingu fyrir ferðamenn. Nefni ég dæmi um ungan mann sem sagði mér um daginn að hann og hans fjölskylda væru þau einu sem væru með fasta búsetu við götuna hans. Öll hin húsin eru komin í útleigu fyrir ferðaþjónustu. Auðvitað skapar þetta ákveðin tækifæri fyrir íbúa en mér finnst þetta lítið rætt. Landsbyggðin á að vera svo glöð að fá alla þessa ferðamenn, er það ekki? Raunin er samt sú að grunnþjónusta er að skerðast. Ekki er hægt að fá fagfólk til að veita þjónustu sem þarf að auka, t.d. hjúkrunarfræðinga og í löggæslu, og í þessu sveitarfélagi er hvorki starfandi ljósmóðir, menntaður náms- og starfsráðgjafi né sálfræðingur. Óhætt er að segja að allt sé pikkfast.
Því vil ég spyrja hæstv. ráðherra hvort verið sé að vinna að úttekt um þessi mál. Er verið að skoða hvernig þessi aukni ferðamannastraumur kemur við íbúa í minni sveitarfélögum úti á landi? Og ef svo er, er verið að leita lausna til að tryggja að grunnþjónustan sé í lagi?