fjárveiting til löggæslu.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. innanríkisráðherra fyrir greinargóð svör. Ég ítreka að mér finnst þurfa að endurspeglast í ákvörðunum Alþingis þegar fjárlög eru afgreidd á hverju ári hverjar grunnskyldur ríkisins eru. Ein af grunnskyldunum er að halda hér uppi öflugu innra og ytra öryggi fyrir landsmenn. Mér finnst ekki alltaf endurspeglast þegar Alþingi afgreiðir fjárlög vegna þess að stundum er verið að eyða fjármunum í léttvægari verkefni og jafnvel hégómleg. Ég skora á þingheim að breyta þeim vinnubrögðum.
Ég vil spyrja hæstv. innanríkisráðherra að lokum: Hvenær má gera ráð fyrir því að löggæsluáætlun sem unnin er á vegum ráðuneytisins verði tilbúin þannig að þingið geti tekið heildstæða og (Forseti hringir.) raunhæfa umræðu um þetta mikilvæga mál sem skiptir okkur öll svo miklu máli?