viðvera utanríkisráðherra við umræðu um ÞSSÍ.
Herra forseti. Í gær við umræður um það dagskrármál sem við hefjum nú senn umræður um á nýjan leik komu fram mjög skýrar óskir frá hv. þingmönnum stjórnarandstöðunnar um að hæstv. utanríkisráðherra yrði við umræðuna. Ástæðan fyrir því var sú að talið var nauðsynlegt að spyrja hann út í það sem kemur fram í umsögnum m.a. hjá Alþýðusambandi Íslands að séu hreinar rangfærslur í greinargerð með frumvarpinu. Þetta þarf að upplýsa og það er ekki hægt að ætlast til þess að hv. formaður utanríkismálanefndar geti upplýst um það heldur einungis sá sem ber ábyrgð á greinargerðinni.
Þar við bætist, herra forseti, að fram hafa komið úr þessum ræðustóli fullyrðingar af hálfu gamalreynds þingmanns og virts, hv. þm. Ögmundar Jónassonar, um að ástæðan fyrir því að frumvarpið sem virðist einskis stuðnings njóta í stjórnarliðinu en á eigi að síður fram að keyrast sé sú að það liggi að baki pólitísk hrossakaup millum hæstv. utanríkisráðherra og Sjálfstæðisflokksins sem miða að því að koma (Forseti hringir.) öðru tilteknu máli í gegn, gegn því að Sjálfstæðisflokkurinn styðji þetta mál sem honum liggur þó við uppsölum við vegna. Það er nauðsynlegt að hæstv. utanríkisráðherra skýri þetta og hann einn getur það.