145. löggjafarþing — 37. fundur,  19. nóv. 2015.

viðvera utanríkisráðherra við umræðu um ÞSSÍ.

[11:27]
Horfa

Vigdís Hauksdóttir (F):

Virðulegi forseti. Lýðræðið virðist vera þannig skilgreint í þinginu í dag að meiri hlutinn eigi að láta minni hlutanum eftir þau mál sem eru á stefnuskrá ríkisstjórnarinnar. Þannig er það ekki, virðulegi forseti. Eins og hv. þm. Ásmundur Einar Daðason fór yfir er það atkvæðagreiðslan í málinu sem skiptir máli.

Ég er ekki þar með að gera lítið úr þverpólitískri sátt í ákveðnum málum. Ég fagna því til dæmis að það var til fyrirmyndar hvernig frumvarp um opinber fjármál var afgreitt úr fjárlaganefnd. Fulltrúar allra flokka sem eiga sæti á þingi voru á því máli að undanskildum vinstri grænum.

Þingræðið byggir á því að ráðherrar koma í 1. umr. og reifa þau mál sem leggja á fyrir þingið, síðan fara þau til nefndar og þar eftir eru málin hjá þinginu. Það er þannig núna í þessu máli. Hér er 2. umr. um málið og þingið (Forseti hringir.) á að fjalla um það og greiða síðan um það atkvæði.