145. löggjafarþing — 37. fundur,  19. nóv. 2015.

viðvera utanríkisráðherra við umræðu um ÞSSÍ.

[11:32]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Forseti vill taka það fram vegna orða hv. þingmanns að hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra ætlaði að vera hér í óundirbúnum fyrirspurnatíma í dag en í ljós kom að hún var veik í morgun og ekki reyndist unnt að bregðast við og fá annan ráðherra í staðinn með svo skömmum fyrirvara. Hæstv. félagsmálaráðherra hefur verið til mikillar fyrirmyndar um mætingu á slíka dagskrárliði.