145. löggjafarþing — 37. fundur,  19. nóv. 2015.

alþjóðleg þróunarsamvinna Íslands o.fl.

91. mál
[12:08]
Horfa

Lárus Ástmar Hannesson (Vg) (andsvar):

Forseti. Ég er sammála hv. þingmanni þegar hún segir að þetta sé ólukkumál. Það er það vissulega. Eftir því sem maður hlustar meira á mál þeirra þingmanna sem hér tala, sem eru að vísu bara úr stjórnarandstöðunni — það eru ósköp fáir úr stjórn sem segjast styðja þetta mál sem koma hér og skýra frá sinni nálgun á því máli — þá hvarflar eftirfarandi að mér, og það hefur komið aðeins fram í máli hv. þingmanns hér: Snýst þetta kannski um pólitísk tengsl annars vegar og svo viðskiptaleg hins vegar? Er verið að reyna að færa þessa starfsemi í þennan farveg til þess að losna við gagnsæi? Það er það sem kemur upp í huga minn. Ég vil í því samhengi nefna orkugeirann. Það setur að mér pínulítinn óhug að þurfa að hugsa þetta á þann máta. Það er ekki beint spennandi hugsun þegar maður veit hversu mikið er í húfi og fyrir hvernig fólk verið er að vinna, þ.e. fátækasta fólk heimsins sem telur sig bara nokkuð heppið ef það hefur mat að borða.

Gæti hv. þingmaður farið aðeins yfir það í ræðustól hvernig þessu er háttað annars staðar á Norðurlöndunum? Er um að ræða sams konar kerfi og hér er? Menn gera allt sem þeir geta til þess að leggja þessa stofnun niður og færa inn í ráðuneyti til þess að ná yfirráðum yfir einhverju sem er í mínum huga algjörlega óskiljanlegt.