hugmyndir um einkavæðingu Landsbankans.
Virðulegi forseti. Ég þakka málshefjanda fyrir að taka þetta mál upp og svör hæstv. fjármálaráðherra.
Hér hefur talsvert mikið verið talað um einkavæðinguna hina fyrri og rök talin upp fyrir því almennt að ekki sé skynsamlegt að ríkið eigi fjármálafyrirtæki, það sé svo mikil áhætta o.s.frv. Þetta eru sömu rökin og voru meðal annars notuð á síðasta kjörtímabili þegar kröfuhöfum voru afhentir bankarnir þá. Við getum dvalið við þær tvær aðgerðir. En veltum fyrir okkur hvað það er sem skiptir máli á þeim tíma sem við lifum núna. Ég er þeirrar skoðunar að við höfum endurreist bankakerfið í allt of líkri mynd og það var fyrir hrun og það gerðist á síðasta kjörtímabili.
Nú erum við að verða vitni að því að kapphlaup forustumanna fjármálafyrirtækjanna, samtaka fyrirtækja á fjármálamarkaði, er um það að reyna að sannfæra okkur öll að stærsta atriðið sé að losa okkur sem fyrst við alla eignarhlutina í bönkunum, vegna þess að áhætta sé af því o.s.frv. Þetta kann að einhverju leyti að vera rétt. En við þurfum áður en við stígum þau skref að spyrja okkur hvaða breytingar það eru sem við þurfum að gera á fjármálakerfinu. Þetta snýst ekki um hvort við seljum 10% eða 20% og hvort það verða 10 milljarðar eða 20 milljarðar.
Af hverju er svona mikill gróði í bankakerfinu? Af hverju eru bankarnir búnir að skila tugum milljarða í hagnað á síðustu árum, jafnvel þrátt fyrir mikla skatta sem menn tala um að séu á fjármálakerfið? Hvernig aukum við hagkvæmni í bankakerfinu fyrir fyrirtæki og almenning í kringum landið? Hvernig svörum við þeim spurningum? Ætlum við ekki að ráðast í aðskilnað viðskiptabanka og fjárfestingarbanka sem nú er orðin stefna allra stjórnmálaflokka sem sæti eiga á Alþingi, allra stjórnmálaflokka eftir landsfund Sjálfstæðisflokksins? Ætlum við að bjóða áfram upp á verðtryggt fjármálakerfi fyrir fjármálamarkaðina og fyrir bankana? Við þurfum að fara fyrst í slík atriði. Og þegar við erum búin að svara því hvernig við ætlum að leysa þau mál þá er orðið tímabært að tala um (Forseti hringir.) með hvaða hætti eignarhaldinu er best háttað á bönkunum og þá kann vel að vera að skynsamlegt sé að bankarnir séu ekki í eigu hins opinbera og ég tek eiginlega undir þau sjónarmið. En þetta eru grunnspurningarnar áður en lengra er haldið.