hugmyndir um einkavæðingu Landsbankans.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. efnahags- og fjármálaráðherra fyrir að taka þessa umræðu við okkur hér á þinginu. Ég treysti því að Alþingi verði haft meira í ráðum nú en áður og reikna með því að Alþingi tryggi það sjálft.
Ég vil einnig þakka öllum hv. þingmönnum sem tóku til máls í umræðunni. Eftir því sem ég skil best þá skil ég hæstv. ráðherra þannig að einkavæðingarferlið mun sennilega hefjast á næsta ári en hins vegar erum við ekki öll sammála um það hvort það sé skynsamlegt. Við erum öll sammála um að bankar gegna mikilvægu samfélagslegu hlutverki en að sama skapi þurfum við líka að huga að hlutverki ríkisins og hvort ríkið eigi að stunda fjármálastarfsemi og það er umræða sem vert er að taka.
Ég tek sérstaklega undir orð hv. þm. Oddnýjar Harðardóttur um ítrekun á skýrslu um rannsókn á einkavæðingu bankanna. Við þurfum að fá þessa skýrslu í raun og veru áður en við höldum aftur í útrás, áður en við förum aftur í það að einkavæða bankana því það er alveg óþarfi að gera sömu mistökin aftur. Mig langar til að biðla til hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra um að ganga hægt um gleðinnar dyr og vanda til verka þegar við einkavæðum aftur, hvort sem það verður á þessu ári eða næsta eða þar næsta. Síðan vil ég einnig ítreka það að þegar bankarnir voru einkavæddir á sínum tíma í Skandinavíu þá tók það áratugi. Bankarnir eru í einhverjum af þeim skandinavísku löndum sem við viljum endilega bera okkur saman við enn þá að einhverjum hluta í eigu ríkisins.
Að einkavæða banka, sérstaklega ef við ætlum að einkavæða þrjá banka, tekur ekki þrjú ár. Maður einkavæðir ekki einn banka á ári eins og gert var síðast. Það tekur áratugi og við þurfum að hugsa langt fram í tímann. Það er eitthvað sem hefur einkennt íslensk stjórnmál alla tíð, við hugsum ekki nógu langt fram í tímann heldur bara eina önn í einu og það er allt of skammt.