145. löggjafarþing — 37. fundur,  19. nóv. 2015.

um fundarstjórn.

[14:11]
Horfa

Svandís Svavarsdóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Hún er áhugaverð, sú staða sem er að dragast upp í þinginu. Það hefur komið fram í þessari umræðu að Sjálfstæðisflokkurinn er algjörlega einangraður í afstöðu sinni til einkavæðingar bankanna og í þessu mikla kappi í þeim efnum sem lýsir sér best í síðasta svari hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra sem svall móður yfir stöðunni og fórnaði höndum yfir hugmyndum um samfélagsbanka sem hafa verið ræddar og reifaðar meðal félaga hans í ríkisstjórn, í Framsóknarflokknum. Hvað kostar það allt saman fyrir Framsóknarflokkinn, að vera til í að verða samferða Sjálfstæðisflokknum í þessum einkavæðingaráformum, í því að sauma að heilbrigðiskerfinu, henda hundruðum manna út úr framhaldsskólanum? Kostar það Þróunarsamvinnustofnun? Dugar það Framsóknarflokknum [Kliður í þingsal.] í þeim pólitísku hrossakaupum sem hér (Forseti hringir.) eru til umræðu að leggja niður Þróunarsamvinnustofnun? (Gripið fram í.)