145. löggjafarþing — 37. fundur,  19. nóv. 2015.

um fundarstjórn.

[14:14]
Horfa

Össur Skarphéðinsson (Sf):

Frú forseti. Í umræðunni áðan urðu söguleg tíðindi. Einkavæðing bankanna leiddi á sínum tíma einhver mestu efnahagsáföll yfir íslenska lýðveldið sem það hefur nokkru sinni lent í. Nú hefur hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra ítrekað sinn einbeitta vilja til að ráðast í nýja einkavæðingu. Hann vill haga henni með þeim hætti að hv. formaður efnahags- og viðskiptanefndar lýsir því nánast þannig að það mundi leiða til brunaútsölu á bönkum í eigu ríkisins.

Hér hefur augljóslega komið fram grundvallarágreiningur um eitt af mikilvægustu atriðunum í efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar, þ.e. um sölu á hlut í Landsbankanum. Hér kemur fram að tveir þingmenn Framsóknarflokksins, hv. formaður þingflokksins og hv. formaður efnahags- og viðskiptanefndar, (Forseti hringir.) leggjast gegn þessu. Hæstv. fjármálaráðherra svarar með því að gera gys að hugmyndum Framsóknarflokksins um samfélagsbanka. Við þurfum að fá skorið úr því hver stefna ríkisstjórnarinnar í þessu máli er.