um fundarstjórn.
Frú forseti. Hv. þm. Ásmundur Einar Daðason talaði um að sjálfsagt væri að halda hér áfram umræðu um ÞSSÍ vegna þess að frumvarpið hefði verið samþykkt í ríkisstjórn, í þingflokkum ríkisstjórnarflokkanna og stuðningur væri við það á Alþingi. Sama er að segja um fjárlagafrumvarpið eins og hér hefur komið fram og ríkisfjármálaáætlun sem er til lengri tíma en eins árs. Þá samþykktu hv. framsóknarmenn og hæstv. ráðherrar í ríkisstjórn sölu á eignarhlut ríkisins í bönkunum, þingflokkarnir gerðu það líka og samþykktu einnig ríkisfjármálaáætlunina í þingsal. Hv. þingmenn Sjálfstæðisflokksins eru hins vegar svo kurteisir að þeir fara ekki í hv. framsóknarmenn og hæstv. utanríkisráðherra í þessu máli, (Forseti hringir.) en það gera hv. þingmenn Framsóknar kinnroðalaust þegar þeir mótmæla máli (Forseti hringir.) hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra.