145. löggjafarþing — 37. fundur,  19. nóv. 2015.

alþjóðleg þróunarsamvinna Íslands o.fl.

91. mál
[15:28]
Horfa

Lárus Ástmar Hannesson (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnirnar. Það er náttúrulega ekki gott að þingmenn skrifi undir nefndarálit í svona stóru máli öðruvísi en að fara vel í gegnum það, sérstaklega í máli sem á í rauninni að vera algjörlega laust við pólitík. Í mínum huga á þetta ekki að vera einhver hægri eða vinstri pólitík, heldur fyrst og fremst gott mál sem við höfum sinnt vel og vakið athygli fyrir að hafa gert það þannig. En menn ætla að fara að rífa það upp með rótum og færa það úr gagnsæjum farvegi yfir í ógagnsæjan og þá er hætta á minni fagmennsku og það gefur meiri kost á tortryggni. Tortryggni er eitthvað sem við þurfum að vinna úr ef við ætlum að reyna að vinna okkur inn traust.

Varðandi þróunarsamvinnunefnd. Ég talaði um breytingar áðan og að menn þyrftu að rökstyðja þær faglega og rekstrarlega. Þetta er að sjálfsögðu ekkert rökstutt. Því er einhvern veginn kastað inn.

Ég velti því fyrir mér en ég kemst ekki að neinni niðurstöðu með þetta. Ég verð að segja það við hv. þingmann. Ég skil þetta ekki. Ég sé enga ástæðu fyrir því af hverju verið er að fara með þetta í þennan farveg.

Pólitíkin í þessu mikilvæga máli þarf að vera algjörlega út. Þess vegna vil ég hvetja til þess að menn reyni að stoppa við og fara yfir þetta og vita hvort ekki sé hægt að finna betri lausn á þessu.