alþjóðleg þróunarsamvinna Íslands o.fl.
Virðulegur forseti. Ég geri engan ágreining við hv. þingmann um að betur fari á því að nefna að enginn hafi lagst gegn því að málið færi úr nefnd. Það kom skýrt fram í máli hv. þingmanns og annarra þingmanna stjórnarandstöðunnar á fundum utanríkismálanefndar að þeir hefðu gjarnan viljað halda málinu lengur og mun lengur í nefndinni. Það er alveg hárrétt. Aðalatriðið er þó að það var ekki ágreiningur um og það greiddi enginn atkvæði gegn því að klára málið. Við sýndum hvert öðru skilning á því að þessu væri lokið.
Virðulegur forseti. Ég held að það sé rétt hjá hv. þingmanni að gjáin sé umtalsverð. Þess vegna snýst þetta ekki um tog um það hvort málið hafi verið rætt of mikið eða of lítið, hvort andsvör séu of fá eða of mörg eða hvernig málinu sé háttað, við erum einfaldlega ósammála. Við tókum málið aftur, málinu var frestað á síðasta þingi og kom aftur inn á þessu þingi, það hefur aftur komið fyrir nefndina. Við erum búin að taka það aftur og aftur upp en við náum ekki að verða sammála um það. Ég held að þá sé hið eina í stöðunni að nota aðferð lýðræðisins og greiða atkvæði um málið. Þess vegna held ég að það sé löngu kominn tími á að greiða atkvæði um málið og fá afstöðu þingmanna fram og ljúka síðan málinu.
Ég held, virðulegur forseti, að við náum ekki, eins og hv. þingmaður sagði sjálf, samstöðu í gegnum þetta samtal sem við eigum hér, því miður, og því sé farsælast að greiða atkvæði um málið og láta lýðræðið ráða.