alþjóðleg þróunarsamvinna Íslands o.fl.
Virðulegi forseti. Mig langar að árétta það að ég mundi frekar vilja vera að ávörpuð Ásta Guðrún en ekki Ásta G. þar sem það hefur aldrei tíðkast. Svo vil ég líka fá að kvarta aðeins yfir skipulagsleysi almennt á þinginu. Við erum að tala um að verið er að boða fundi með innan við 12 tíma fyrirvara, rétt rúmlega. Algjört skipulagsleysi einkennir það hvernig þingið starfar og ég sé ekki betur en að þetta sé kerfisbundið skipulagsleysi til þess að níðast á þingmönnum. Skipulagsleysi er form af valdníðslu og það hvernig mál eru sett á dagskrá, hvernig fundir eru boðaðir og hvernig haldið er utan um það. Það er verið að reyna að koma í veg fyrir að þingmenn nái að undirbúa sig almennilega, það er verið að reyna að koma í veg fyrir að þeir geti sótt sér bestu mögulegu heimildir. Það mundi enginn láta bjóða sér upp á þetta ef fólk væri í skóla eða í einhverri annarri vinnu en hérna finnst okkur þetta allt í lagi. Mér finnst það eiginlega vandræðalegt og þinginu alls ekki til sóma.