alþjóðleg þróunarsamvinna Íslands o.fl.
Virðulegi forseti. Ég vil taka undir þær áhyggjur sem hafa komið fram af hálfu hv. þm. Bjarkeyjar Olsen Gunnarsdóttur að því er varðar verklagið í hv. fjárlaganefnd. Raunar er það svo að nú um miðjan nóvember sjáum við fram á það að starfsáætlunin er þegar í uppnámi. Hún er í uppnámi og það eru tveir mánuðir liðnir af yfirstandandi þingi. Það sem meira er þá er stjórnleysið svo yfirgengilegt, við höfum orðið þess áskynja að stjórnleysi er töluvert í ríkisstjórninni þar sem er engin forusta, að hér í þinginu er það svoleiðis að forseti Alþingis fréttir það í fjölmiðlum, eftir að hafa lesið með morgunkaffinu viðtal við hv. þm. Vigdísi Hauksdóttur, að starfsáætlun sé út um þúfur. [Hlátur í þingsal.] Og hann viðurkennir það bara úr forsetastóli. Já, ég var líka að sjá þetta í fréttunum, segir hæstv. forseti. Þetta er náttúrlega með slíkum ólíkindum, virðulegur forseti.