145. löggjafarþing — 37. fundur,  19. nóv. 2015.

alþjóðleg þróunarsamvinna Íslands o.fl.

91. mál
[17:07]
Horfa

Steingrímur J. Sigfússon (Vg) (um fundarstjórn):

Herra forseti. Það var með mig eins og fleiri að ég heyrði það í morgunfréttunum gegnum hv. þm. Vigdísi Hauksdóttur að starfsáætlun Alþingis væri hrunin og sit ég þó í forsætisnefnd. Ég hafði ekki heyrt á þetta minnst fyrr.

Ég ætlaði að öðru leyti að ræða við forseta um hversu pínlegt það er að við höldum áfram þessari umræðu um Þróunarsamvinnustofnun. Við getum þess vegna tíundað það fleiri þingmenn en hæstv. utanríkisráðherra að við höfum skyldum að gegna annars staðar ef út í það er farið. Nú hallar degi á fimmtudegi, venjan er að ljúka hér fundum um þetta leyti til að menn geti nýtt sér það sem eftir lifir vikunnar til annarra starfa í sínu kjördæmi eða annars staðar og mér finnst það bæði ósanngjarnt og ómálefnalegt að ætlast til þess að við hin höldum hér áfram fundum fram á kvöld eða nótt eða hvað það ætti að vera á sama tíma og hæstv. utanríkisráðherra getur leikið sér eins og honum sýnist og hunsað þingskyldur sínar í þágu einhverra örfárra framsóknarmanna sem honum tekst kannski að smala saman á Ísafirði eða Sauðárkróki.

Ég beini þeim tilmælum til virðulegs forseta að við förum nú að segja þetta (Forseti hringir.) gott. Við hefðum getað notað daginn betur í önnur mál sem hér eru á dagskrá en í öllu (Forseti hringir.) falli held ég að nú sé nóg komið.