145. löggjafarþing — 37. fundur,  19. nóv. 2015.

alþjóðleg þróunarsamvinna Íslands o.fl.

91. mál
[17:18]
Horfa

Lárus Ástmar Hannesson (Vg) (um fundarstjórn):

Herra forseti. Nú hefur það komið fram nokkrum sinnum að vinnubrögðin hér eru með frjálslegra móti miðað við það sem þekkist, þ.e. þeir sem vinna hérna heyra það ýmist í fjölmiðlum að þinghald og tímasetning þingsins sé komin í uppnám og hins vegar er það hinn pósturinn að menn eru yfirleitt ekki á staðnum. Þetta er afar sérkennilegt miðað við þá vinnu sem ég þekki fram til þessa.

Það hefur líka komið fram að þinghald mun standa fram eftir degi og rætt verður þetta mikilvæga mál sem mér finnst að eigi að vera hafið yfir hefðbundna pólitíska umræðu. Þetta er risastórt mál og varðar svo marga, bæði hér á landi og annars staðar, og mér finnst það ekki til of mikils mælst að beðið verði eftir fyrirhugaðri skýrslu frá DAC um stofnunina sem um ræðir.