145. löggjafarþing — 37. fundur,  19. nóv. 2015.

alþjóðleg þróunarsamvinna Íslands o.fl.

91. mál
[18:19]
Horfa

Steinunn Þóra Árnadóttir (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Já, af hverju er verið að gera málið pólitísk eða af hverju höfum við grun um að það sé verið að gera málið pólitískt? Ég held að það snúist um sýn á þróunarsamvinnu líkt og ég hef rakið hér í ræðu og andsvörum í dag. Ég held að þetta snúist annars vegar um það að metnaður núverandi ríkisstjórnar þegar kemur að þróunarsamvinnu er ekkert sérstaklega mikill og síðan að vilja blanda saman þróunarsamvinnu og viðskiptum, þ.e. að viljinn sé til þess að Ísland geti haft með viðskiptum áhrif á það hvernig peningunum er varið. Og þetta tel ég líkt og hv. þingmaður kom aðeins inn á í ræðu sinni að sé einmitt dæmi um gamla Ísland. Svona var þetta praktíserað áður fyrr. Mér finnst þetta arfavond vinnubrögð og vil svo sannarlega leggja mitt af mörkum til þess að við förum ekki aftur í það far og held að það sé alveg rosalega mikilvægt að berjast gegn því.

Það er annað sem mig langar að spyrja hv. þingmann um vegna þess að ég veit að hún hefur áhuga á vinnubrögðum sem stunduð eru á Íslandi. Mér finnst umræðan, efnistökin, í þessu máli líka vera hrópandi dæmi um gamla Ísland. Hér er í rauninni bara stjórnarandstaðan sem talar, en hv. meiri hluti á Alþingi ætlar að knýja málið í gegn með atkvæðagreiðslu að umræðunni lokinni þrátt fyrir að það sé gríðarleg andstaða við málið. Er þetta ekki klárt dæmi um vinnubrögð gamla Íslands sem einmitt er svo sterkt ákall um utan úr samfélaginu um að við hættum að stunda (Forseti hringir.) á Alþingi? Ættum við ekki þess vegna að gera allt sem við getum til að koma málinu í sáttaferli?