alþjóðleg þróunarsamvinna Íslands o.fl.
Frú forseti. Þetta er náttúrlega arfaslakt mál. Það sem hv. þm. Steinunn Þóra Árnadóttir kom inn á að hérna væri verið að blanda þróunarsamvinnu og viðskiptum er fyrir neðan allar hellur. Ég skil ekki hvernig fólki dettur svoleiðis lagað í hug og ef sú er raunin þá eru það í fyrsta lagi mjög alvarlegar ásakanir. En miðað við það gamla Ísland sem ég þekki þá kæmi það mér ekkert á óvart.
Þetta mál var fyrst tekið fyrir á 144. þingi þegar ég kom inn stuttlega sem varaþingmaður og þá þekkti ég ekki mikið til málsins en það er eitthvað sem hefur fylgt mér svolítið í gegnum mína tíð hér á þingi, þótt mín þingseta sé nú frekar stutt hingað til, en mér finnst það vera í hnotskurn dæmi um gamla Ísland. Það er í hnotskurn dæmi um þá valdníðslu sem hefur verið stunduð í krafti meirihlutaræðis hér á þingi.
Eins og ég nefndi áðan í fundarstjórn forseta þá er framkvæmdarvaldið rosalega sterkt á Íslandi sem þýðir að það er ekki hægt að eiga samræður, það er ekki hægt að eiga nokkurs konar orðaskipti. Fólk er hvert í sínu horni og það virðist ekki vera hægt að koma málum áfram. Meðan við erum í þeim skotgrafarhernaði sem liggur við að sé stundaður hérna þá þurfum við kannski smá þróunarsamvinnu þegar kemur að því hvernig við ætlum að vinna hérna á þingi. Upplýsingaleiðir hér eru algjörlega gallaðar og metnaðurinn sem er lagður í að búa til greinargerðir og fleira er fyrir neðan allar hellur. Mér finnst þetta algjörlega vera dæmi um gamla Ísland og (Forseti hringir.) það Ísland sem ný stjórnarskrá átti og þarf að laga.