145. löggjafarþing — 37. fundur,  19. nóv. 2015.

alþjóðleg þróunarsamvinna Íslands o.fl.

91. mál
[18:31]
Horfa

Ásta Guðrún Helgadóttir (P) (andsvar):

Frú forseti. Já, það sem ég hugsaði þegar ég var að lesa þessa greinargerð var að þetta hefði varla verið talið til góðra verka innan sagnfræðideildar Háskóla Íslands. Flestir hefðu kannski bara gott af því að taka eins og einn kúrs í sagnfræðilegum vinnubrögðum. Það er algjör óþarfi að nefna sama hlutinn þrisvar eins og gert er hér og þar af í einni efnisgrein sem er fyrir neðan allar hellur.

Það kemur mér mjög á óvart að sjá hvernig — eða það kemur samt í sjálfu sér ekki á óvart en að sama skapi er einhvern veginn svo ógnvekjandi að horfa í eigin persónu upp á framferði ríkisstjórnarinnar, sérstaklega þegar ég er búin að vera að lesa um aðdraganda og orsakir bankahrunsins á Íslandi. Þar er þetta nefnt, nákvæmlega það að framkvæmdarvaldið hafi verið svo ótrúlega sterkt á þessum tíma. Við erum komin aftur þangað. Við erum komin aftur í gamla Ísland, það gamla Ísland sem ég mótmælti hérna fyrir utan 2008 og 2009, fyrirgefið öll sem voruð hér inni, þannig að það kemur mér mjög á óvart að hv. þm. Össur Skarphéðinsson sem er búinn að vera á þingi jafn lengi og ég er búin að vera til hafi heldur ekki séð jafn illa unna greinargerð og jafn lélegan rökstuðning með frumvarpi til laga. Það er bara þannig.