145. löggjafarþing — 37. fundur,  19. nóv. 2015.

alþjóðleg þróunarsamvinna Íslands o.fl.

91. mál
[19:29]
Horfa

Frsm. minni hluta utanrmn. (Össur Skarphéðinsson) (Sf) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Ég get ekki annað en tekið undir kröfu hv. þm. Steingríms J. Sigfússonar. Mér finnst það ekki ná nokkurri átt eftir að hv. þingmaður hefur haldið hér langa ræðu fyrr í umræðunni, komið margsinnis í andsvör og óskað eftir því að fá hæstv. ráðherra hingað í salinn til að geta beint til hans spurningum sem varða eðli og inntak þessa máls. Mér finnst ósk hv. þingmanns fullkomlega eðlileg. Það er ekki hægt að láta hann tala hér undir kvöld á meðan hæstv. ráðherra er víðs fjarri að leika sér með félögum sínum í Famsóknarflokknum.

Hv. þm. Svandís Svavarsdóttir óskaði sér þess að málið yrði í vörslu og forsjá umhverfisnefndar. Ég skil það vel. Staðreyndin er sú að þar unnu menn vel að því að reyna að ná sátt um þetta mál. Ég tek hins vegar ekki undir þá ósk hennar að hv. þm. Hanna Birna Kristjánsdóttir taki einhverjum sérstökum sáttatökum á þessum málum. (Forseti hringir.) Það er rétt að það komi algerlega skýrt fram að vinnubrögð hv. formanns utanríkismálanefndar og varaformanns hennar, (Forseti hringir.) þær stöllur tvær Hanna Birna Kristjánsdóttir og Silja Dögg Gunnarsdóttir, voru (Forseti hringir.) tuddalegustu vinnubrögð sem ég hef upplifað á Alþingi Íslendinga.