almenningssamgöngur og uppbygging þeirra á höfuðborgarsvæðinu.
Virðulegur forseti. Ég þakka fyrir umræðuna sem hefur verið ljómandi góð. Aðeins vegna orða hv. þm. Steingríms J. Sigfússonar um almenningssamgöngur um landið, svo að ég upplýsi um það úr því að spurt er, þá eru þær hluti af tillögugerð í fjárlagagerðinni sem kemur frá ríkisstjórninni um að líka verði styrking til almenningssamgangna á landsbyggðinni, 57 millj. kr. Það skiptir máli í þessu sambandi.
Við vitum að það eru svolítið ólík sjónarmið hjá landshlutasamtökunum þegar litið er á umfang verkefnisins. Við þekkjum þann tiltekna vanda sem Eyþing glímir við. Svo eru aðeins önnur sjónarmið sums staðar á Suðurlandi. Svo vitum við að á næstunni mun reyna á hæstaréttardóm út af ástandinu fyrir austan, sem getur hreinlega haft áhrif á það hvernig við lítum á einkaleyfi í samgöngum. Það verður fróðlegt að sjá hver niðurstaðan verður. Ég held að margir kvíði því nú reyndar líka hver sú niðurstaða verður.
Ég ítreka það sem ég hef sagt: Við erum að undirbúa stefnumörkun til tólf ára. Það skiptir miklu máli. Það er alltaf forvitnilegt að velta fyrir sér hvernig þetta verði eftir fimmtíu ár. Það er það sem ég hafði áhuga á þegar ég setti af stað annars konar vinnu í samgöngumálum, að horfa svolítið langt fram í tímann. Hvað sjáum við? Það sem við erum að gera í samgönguáætlunum er mjög afmarkað ferli sem er reglubundið en stundum er gott að lyfta sér aðeins ofar. Í þessu efni finnst mér skipta máli að líta til fjölbreytninnar. Það er mikilvægt fyrir okkur þegar við setjum fram rökstuðning í tilteknu málum að gera okkur grein fyrir að það eru ekki allir eins og við og það eru ekki allir eins og hv. þm. Heiða Kristín Helgadóttir. Menn þurfa að hafa það í huga. (Forseti hringir.) Þess vegna finnst mér verra þegar hlutunum er stillt upp hvorum gegn (Forseti hringir.) öðrum því að ég held að þess þurfi ekki.