145. löggjafarþing — 39. fundur,  24. nóv. 2015.

viðvera utanríkisráðherra við umræðu um ÞSSÍ.

[15:24]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Forseti vill af þessu tilefni upplýsa að það kom fram á fundi þingflokksformannanna nú í gær að hæstv. ráðherra yrði kominn hingað til fundarins síðar í dag. Hæstv. ráðherra hefur verið á ráðherrafundi erlendis sem er auðvitað eðlilegur hluti af hans starfsskyldu. Það var sem sagt upplýst að hæstv. ráðherra kæmi hér til fundarins síðar í dag.