alþjóðleg þróunarsamvinna Íslands o.fl.
Virðulegi forseti. Ég get ekki svarað fyrir Ríkisútvarpið. Ég get það bara ekki. Ég er ekki í neinni stöðu til þess og veit ekki hvað þeir hafa fyrir sér í þeirri frétt. Ég man nú reyndar ekkert eftir fréttinni, ég verð að segja það. (Gripið fram í: … þú manst eftir …) Nei, ég man ekki eftir henni, hv. þingmaður, en ég ætla ekki að segja að hún hafi ekki verið birt, alls ekki, ég man hins vegar ekki eftir henni.
Ég verð að fá að nota tækifærið og segja að það var mjög lærdómsríkt og gott að koma til Malaví sérstaklega, við eyddum þar miklum tíma, og sjá hvað mikið hefur gerst, hvað það starf er gott og þar hefur náðst mikill árangur. Það er eitthvað sem ég alla vega tek með mér inn í framtíðina sem mikinn lærdóm, að sjá hvað það góða starfsfólk er að gera þar.
Eins og kom fram í máli mínu áðan kemur DAC-nefndin með ábendingar eða hvað megi skoða betur. Hún kemur ekki og segir að ÞSSÍ skuli fara inn í ráðuneytið eða ráðuneytið inn í ÞSSÍ eða eitthvað slíkt. Þeir sögðu: Það er rétt að fara yfir starfsemi þróunarmála (Forseti hringir.) á Íslandi og skoða leiðir. Eða eru til leiðir til að bæta um betur? Það er það sem við gerðum.