alþjóðleg þróunarsamvinna Íslands o.fl.
Herra forseti. Hv. þingmaður talar um ráðherraræði. Það sem við horfum upp á hér er ráðherraræði eins manns, eins hæstv. ráðherra. Það hefur komið algerlega skýrt fram að það er enginn í stjórnarliðinu sem treystir sér til að mæla þessu þingmáli bót. Ég tel þó frá þann ágæta hæstv. forseta sem nú er bak mér sem vissulega kom hér í örstutta ræðu af ræktarsemi við sinn ráðherra og mælti málinu bót, talaði með því. En við höfum líka hlustað á tíu til tólf ræður hjá hv. þm. Brynjari Níelssyni þar sem hann hefur saumfarið og beint röntgenaugum sínum á ýmis rökfræðileg atriði málsins en hefur skirrst við að lýsa stuðningi við málið og lái honum það hver sem vill. Það skýrist af því, sem ég sagði hér fyrr í kvöld, að hv. þingmaður er viti borin vera, hann er hugsandi maður, hann veit að það er engin sérstök brú í þessu máli. En fyrir honum ristir það ekki djúpt. Fyrir mér er þetta ástríðumál. Þróunarsamvinna er nokkuð sem ég ber fyrir brjósti og það er þess vegna sem ég er hyggjandi og líð önn fyrir það og sálarkvalir að sjá að hv. þm. Brynjari Níelssyni er slétt sama um málaflokkinn.