loftslagsmál og markmið Íslands.
Forseti. Ég þakka fyrir þessar umræður. Þær eru mikilvægar. Ég varð fyrir nokkrum vonbrigðum þegar ég heyrði að Bandaríkjamenn telja ekki bindandi það samkomulag sem muni nást á þessum fundi. Mér finnst það alvarlegt. Við getum hins vegar litið svo á að það samkomulag sem við náum um framtíðina í París verði okkur leiðarljós, og ekki bara það heldur jafnframt bindandi.
Við sem mannkyn erum á tímamótum. Ef við aðhöfumst ekki neitt núna verða lífsgæði komandi kynslóða öllu verri en okkar. Höfum í huga að þau stríð sem hafa brotist út, m.a. í Sýrlandi, eru að stórum hluta til vegna loftslagsbreytinga. Það voru miklir þurrkar og víða var hungursneyð sem varð til þess að fólk fann drifkraftinn til að mótmæla þeirri harðstjórn sem það bjó þar við. Síðan hefur margt gerst og þetta er orðið mjög flókið mál en upprunalega var það almenningur sem vildi fá meira lýðræði knúinn áfram af hungri út af matarskorti.
Mér finnst mjög mikilvægt, og tek undir með hv. þm. Róberti Marshall, að orðum fylgi efndir. Ef við gerum ekki neitt og ef við höfum ekki skýra sýn á hvert við erum að fara förum við ekki neitt og það er ekki í boði. Það er hreinlega ekki í boði. Ég spyr: Hvar er til dæmis græna hagkerfið sem við fórum af stað með? Hvar er sóknaráætlun 20/20? Hvar er sýnin sem við byrjuðum að vinna saman að? Má ekki vinna að henni af því að hún var gerð á síðasta kjörtímabili? Hvers konar rugl er (Forseti hringir.) það eiginlega?