loftslagsmál og markmið Íslands.
Virðulegi forseti. Ég vil rétt eins og aðrir þakka fyrir afar mikilvæga umræðu.
Í fyrsta lagi vil ég segja þetta: Hér varð nokkurt hnoð í pólitískri umræðu þegar hæstv. forsætisráðherra lýsti því yfir á erlendum vettvangi að Ísland ætlaði að draga úr losun um 40% og dró það svo til baka, eða Jóhannes gerði það reyndar, hv. virðulegur aðstoðarmaður, með tilvísun í sameiginleg markmið Evrópusambandsins þar sem við ætluðum að vera samferða Evrópusambandinu og Noregi.
Ég vil í öðru lagi segja að útfærslan er í raun og veru eftir. Við erum ekki enn þá farin að tala um mælanleg markmið Íslands. Hver eru hin raunverulegu losunarmarkmið Íslands? Noregur hefur gengið lengra en Ísland. Noregur segir í markmiðsyfirlýsingu sinni að lagt sé upp með að Noregur sjálfur muni draga úr losun um 40% en lýsir jafnframt yfir að landið verði kolefnishlutlaust árið 2050. Það er alvörumarkmið sem við Íslendingar hefðum átt að vera á undan Norðmönnum að orða.
Sænsk stjórnvöld hafa líka stigið framar markmiðum Evrópusambandsins. Þar hafa stjórnvöld læst saman örmum með iðnaðinum til að ná kolefnishlutleysi byggt á endurnýjanlegri orku þar sem atvinnulífið er dregið að borðinu til að hvert fyrirtæki búi til sín markmið til að draga úr losun. Þetta þarf að gera hér og vantar algerlega.
Stefna endurspeglast í peningum. Þess vegna segi ég: Skoðum fjárlagafrumvarpið og breytingartillögur ríkisstjórnarinnar við það, sjáum hverjar áherslurnar eru þar. Þar eru þær fyrst og fremst í að auka bindingu en ekki draga úr losun, (Forseti hringir.) ekki í aukinni áherslu á almenningssamgöngur eða orkuskipti í samgöngum. Það vantar algerlega metnaðarfulla áætlun varðandi samgöngugeirann.