alþjóðleg þróunarsamvinna Íslands o.fl.
Virðulegur forseti. Við höfum oft beitt frestun á gildistöku til að leysa erfið ágreiningsmál í þessum sal. Þegar við vorum í stjórnarandstöðu og töldum að Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur væru að einkavæða vatnið varð um það mikil snerra, eðlilega. Þeir voru auðvitað ekki þeirrar skoðunar að þeir væru að því en það var sannfæring okkar. Niðurstaðan var sú að fresta gildistöku þess máls fram yfir alþingiskosningar sem síðan varð til þess að skipti urðu á meiri hluta og færi gafst á að gera breytingar á þeirri löggjöf sem við töldum mikilvægar.
Með svipuðum hætti voru Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur í stjórnarandstöðu á síðasta kjörtímabili. Þá voru lögð hér fram náttúruverndarlög. Það var þá sannfæring Gunnars Braga Sveinssonar, þá hv. þingmanns, að þau væru mjög til ógagns og mikilvægt að þau öðluðust ekki gildi. Það varð úr og gildistöku þeirra var frestað fram á þetta kjörtímabil.
Og viti menn, aftur urðu skipti á lýðræðislegu umboði og þeir sem höfðu verið í stjórnarandstöðu komust í stjórn. Nú hafa ráðherra og nefndarformaður úr þeirrar röðum farið yfir náttúruverndarlögin og gert þær breytingar sem núverandi stjórnarflokkum þykja mikilvægar. Alveg sams konar tækifæri mundi opnast með því að fresta gildistöku á þessu atriði. Ef ekkert breytist í hinu lýðræðislega umhverfi í stjórnarháttum í landinu og þetta er jafn góð ákvörðun og ráðherrann telur, þá öðlast þessi breyting gildi að tveimur árum liðnum. Málaflokkurinn nýtur þess um langa framtíð sem ráðherrann hefur talið gott við málið og fullur sigur er unninn í málinu af hans hálfu.
En ef til dæmis DAC-skýrslan kallar á það eftir ár eða þá alþingiskosningar að menn telji ástæðu (Forseti hringir.) til að breyta löggjöfinni og koma með frumvarp til að hverfa frá þessari ákvörðun og það fæst samþykkt í þinginu, verður tækifæri til þess. Það mundi mæta sjónarmiðum beggja.