145. löggjafarþing — 41. fundur,  26. nóv. 2015.

afstaða stjórnvalda til öryggismála.

[10:36]
Horfa

innanríkisráðherra (Ólöf Nordal) (S):

Hæstv. forseti. Það ætti ekki að koma nokkrum manni á óvart að rætt sé um Schengen núna þegar svo mikið álag er á ytri landamærum Schengen. Það er líka óhætt að segja að umræða eigi sér reyndar stað á vettvangi Schengen-ríkjanna um hversu mikilvægt það sé að ná tökum á ytri landamærum Schengen. Þar hafa menn líka rætt um að það sé algjört lykilatriði fyrir framgang og framtíð Schengen að það takist. Engu að síður erum við Íslendingar í Schengen, stöndum að baki Schengen, en við hljótum líka að vera tilbúin að ræða þá galla sem nú eru á Schengen og hvernig við eigum að bregðast við þeim. Ég held að við eigum ekki að vera hrædd við slíka umræðu.

Það liggur alveg fyrir að innan Schengen-regluverksins — þetta finnst mér skipta máli og það kann vel að vera að við þurfum að hafa betri umræðu um akkúrat tæki Schengen — eru tæki til þess að herða landamæri innan ríkja Schengen án þess að breyting sé gerð á regluverkinu. Það hafa ríki Schengen gert í auknum mæli. Við sjáum það allt í kringum okkur. Nánast daglega fáum við fréttir af því að ríki telji sig knúin til að reisa landamæri sín vegna ástands sem skapast hefur innan Schengen-ríkjanna. Auðvitað endurspeglar það á vissan hátt þann mikla vanda sem er á ytri landamærunum.

Framámenn Evrópusambandsins sjálfs hafa einnig lýst því að það sé nauðsynlegt að ná tökum á þessum ytri landamærum. Það er númer eitt, tvö og þrjú. Um það verða menn að sameinast. Ég tel það algert lykilatriði. Við höfum rætt það margsinnis í sölum þingsins, það hef ég gert. Ég tel Schengen mjög mikilvægt tæki fyrir okkur en við þurfum líka að gera okkur grein fyrir því að til að það nái þeim markmiðum sínum sem það þarf að ná verðum við að ná tökum á ytri landamærum Schengen.