vopnaburður lögreglunnar.
Hæstv. forseti. Ég held að það sé mikilvægt að fram komi að þeir auknu fjármunir sem fara eiga til lögreglunnar, sem vonandi verður að veruleika — við þurfum að hafa það í huga að það er Alþingi Íslendinga sem fer með fjárveitingarvaldið hér — en verði sú fjárveiting að veruleika, sem ég held að sé afskaplega jákvætt, er þeim fjármunum ætlað að nýtast til tiltekinna verkefna lögreglunnar. Þeim er ekki ætlað að mæta launakostnaði heldur eiga þeir að fara til tiltekinna verkefna lögreglunnar til að hún geti betur sinnt þeim verkefnum sem henni ber að sinna. Þar má nefna fjöldamörg verkefni sem hv. þingmaður veit að við höfum áður rætt.
Hluti af almennri löggæslu er alltaf það hvernig fara skuli með verndarbúnað lögreglu. Það er alveg ljóst að löggæslan í landinu þarf að hafa tiltekinn búnað. Það hljóta menn að sjá og um það gilda mjög stífar reglur sem eru mönnum opinberar. Það er mikilvægt að það sé löggæslan sem meti það og að það sé gert eftir mjög ákveðnum reglum og metið hvað lögreglan telur sig þurfa að hafa til að geta gegnt grundvallarhlutverki sínu. Það er ekki hægt að horfa fram hjá því að lögreglan þarf að hafa ákveðinn viðbúnað. Það er samkvæmt eðli þeirra starfa sem lögreglan sinnir, þannig að við skulum ekki óttast það, en það er mikilvægt að um það gildi skýrar reglur og að menn viti í hverju þær felast.
Hv. þingmaður nefnir þá vinnu sem verið hefur í gangi og þá áherslu hans sem mér er líka kunn, þ.e. mikilvægi þess að hafa eftirlit með störfum lögreglu. Ég held að það sé mjög mikilvægt að það sé líka gagnsæi þegar kemur að störfum lögreglunnar. Ég hygg að ég fái skýrslu í hendurnar á morgun sem snýr einmitt að kvörtunum til lögreglu og meðferð þeirra. Ég vonast til þess að þegar sú skýrsla er komin í hendur okkar í ráðuneytinu getum við farið að vinna áfram með ábendingarnar einmitt til þess að auka traustið sem við verðum að hafa á löggæslunni í landinu og til að viðhalda því.