fjárveitingar til lögreglu.
Hæstv. forseti. Það hefur verið sérstakt átak í þeim málaflokki hjá lögreglunni á undanförnum missirum. Hjá lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu og eins á Suðurnesjum og víðar hafa menn lagt sérstaka áherslu á þau mál. Í því felst auðvitað ákveðin stefna, það hlýtur að liggja fyrir, þannig að ég svara því nú bara með þeim hætti. Það er eitt af verkefnum lögreglunnar að halda uppi lögum og reglu í landinu, það á líka við um þennan viðkvæma og erfiða málaflokk sem hv. þingmaður nefnir og hefur skipt verulega miklu máli að löggæslan hefur lagt áherslu á hann.
Ég held að menn hljóti að vera sammála um það hvar í flokki sem menn standa, hvort sem þeir tilheyra stjórnarmeirihluta eða stjórnarandstöðu, að það hlýtur að vera gleðilegt þegar auknir fjármunir fást til löggæslunnar. Ég held að varla sé efni til þess að kvarta undan því. En þeir eru til þess að efla embætti úti um land, alls staðar vegna þeirra verkefna sem löggæslan sinnir. Ég hef nefnt hér örfá verkefni sem á lögreglunni hvíla, en þetta er hugsað til að efla rekstur lögregluembættanna.