145. löggjafarþing — 41. fundur,  26. nóv. 2015.

alþjóðleg þróunarsamvinna Íslands o.fl.

91. mál
[11:22]
Horfa

Þorsteinn Sæmundsson (F) (um atkvæðagreiðslu):

Hæstv. forseti. Sameining Þróunarsamvinnustofnunar Íslands við skrifstofu í utanríkisráðuneytinu eykur slagkraft verkefnisins og bætir og breikkar faglega þekkingu. Síðasta ríkisstjórn jók eitt árið þróunaraðstoð á fjárlögum til að lengja eigin lífdaga með peningum sem voru ekki til og enn koma menn og belgja sig út af þessu. Þetta er fullkomin hræsni, herra forseti.